KSS fundur 16. maí
Kæru KSS-ingar nær og fjær.
Laugardaginn næstkomandi verður fundur á Holtavegi 28. Tónlist, orð og bæn, skemmtiatriði og ræða eins og venja er. Fundurinn hefst á slaginu 20:30. Eftir fund verður haldið í Kaldársel þar sem hinir geysivinsælu KSS Furðuleikar munu fara fram. Það verður engin rúta þannig allir þeir sem hafa afnot af bíl eru hvattir til þess að mæta á þeim svo öruggt sé að allir komist í Kaldársel.
Hlakka til þess að sjá ykkur á laugardaginn 🙂
Hér fyrir neðan getur á að líta næstu viðburði sem KSS mun standa fyrir.
23. maí – Eurovisionpartý hjá Grímu, Seiðakvísl 38. 25.-27. maí – Vinnuflokkur í Vatnaskógi 30. maí – KSS fundur í Heiðmörk 5.-7. júní – KSS Útilega ( upplýsingar um staðsetningu koma inn síðar)