Skólaprestur vígður
Í gær, sunnudaginn 25. september, var Ólafur Jón Magnússon vígður til prestsþjónustu fyrir KSH, Kristilega skólahreyfingu en KSH er samstarfsvettvangur KSS og KSF, Kristilegs stúdendafélags. Óli Jón verður skólaprestur fyrir bæði félögin og geta KSS-ingar leitað til hans um alla hefðbundna prestsþjónustu. Auk þess býður Óli Jón upp á einkaviðtöl, sálgæslu og fyrirbæn. Sem skólaprestur veitir hann stjórn KSS aðstoð við daglegan rekstur félagsins og er þeim innan handar í flestum verkefnum. Hægt er að fá einkaviðtal með því að hringja í Óla Jón í s. 616 6152 eða senda honum póst á olafur.jon@ksh.is.